Álfatún
Álfatún
Álfatún

Leikskólastjóri óskast í Álfatún

Kópavogsbær óskar eftir að ráða leikskólastjóra í leikskólann Álfatún

Leikskólinn Álfatún tók til starfa 1. október 2001. Hann er 5 deilda leikskóli með rými fyrir 79 börn.

Leikskólinn er staðsettur í skjólsælum reit austast í Fossvogsdalnum og er í beinum tengslum við útivistarsvæðin í dalnum. Í leikskólanum er mikil áhersla lögð á málörvun, hreyfingu og skapandi starf.

Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega forystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn, forráðamenn og leikskóladeild.

Menntunar- og hæfniskröfur
Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt3. júlí 2020
Umsóknarfrestur4. ágúst 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfatún 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar