

Leikskólastarfsmaður óskast á Leikskólanum Óskalandi
Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum deildarstjórum, leikskólakennurum og/eða leiðbeinendum með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða bæði stöðu til frambúðar og afleysingu í fæðingarorlofi með möguleika á áframhaldandi starfi. Viðkomandi þurfa að vera tilbúnir til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á íslenskri tungu. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi:
· Forgangur í leikskólapláss
· Frítt fæði
· Stytting vinnuvikunnar
· Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði
Umsóknarfrestur er til 8.mars nk.
Umsóknknum skal skilað á netfangið [email protected] ásamt ferilskrá.
Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: [email protected]
Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Íslenska










