
Leikskólinn Kirkjuból
Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á öllum skólanum og er hann eins og nýr í dag. Áherslur leikskólans eru á sköpun og lífsleikni ásamt náttúru og umhverfi. Leikskólinn starfar í anda fjölgreindakenningar Howards Gardner ásamt því að vinna með vináttuverkefni, Lubbi finnur málbein, Numicon og fleira.
Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Vinátta - Væntumþykja.

Leikskólakennari óskast í leikskólann Kirkjuból
Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á öllum skólanum og er hann eins og nýr í dag. Áherslur leikskólans eru á sköpun og lífsleikni ásamt náttúru og umhverfi. Leikskólinn starfar í anda fjölgreindakenningar Howards Gardner ásamt því að vinna með Vináttuverkefnið, Lubbi finnur málbein, Numicon og fleira.
Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Vinátta - Væntumþykja.
Heimasíða leikskólans er: www.kirkjubolid.is
Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að bætast við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Fríðindi í starfi
- Full stytting og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
- Fimm skipulagsdagar á ári
- 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
- Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
- Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur24. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kirkjulundur 1, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Óskað er eftir leikskólaráðgjafa
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

Velferðarsvið - Félagsráðgjafi - Sérfræðingur í Barnavernd
Reykjanesbær

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Dalskóli

Sérkennari /þroskaþjálfi/ uppeldismenntaður starfsmaður
Dalskóli

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða leikskólakennara
Kerhólsskóli

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólinn Seljaborg

Umsjónarkennari á yngsta stigi við Flóaskóla
Flóaskóli

Leikskólakennari
Leikskólinn Álfaborg

Leikskólinn Skýjaborg auglýsir lausar stöður við sumarafleysingar frá vori 2026
Leikskólinn Skýjaborg

Leikskóla- og frístundaliði - Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær