

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Ægisborg
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólanum Ægisborg í Vesturbæ Reykjavíkur.
Ægisborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á að skapa hlýlegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Helstu áherslur starfsins hnitast í kringum leik, læsi, hreyfingu og lýðræði og eru kjörorð leikskólans virðing og gleði. Námskrá Ægisborgar og fjölmargar aðrar upplýsingar um leikskólann má finna á netinu: www.aegisborg.is.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Fríðindi í starfi
Samgöngusamningur, 36 stunda vinnuvika, sundkort og menningarkort.
Auglýsing birt17. mars 2023
Umsóknarfrestur31. mars 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Ægisíða 104, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiKennariMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Leikskólinn Lækur óskar eftir leikskólakennara
Lækur

Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Sérkennsla/atferlisfræðingur í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Sérkennsla í leikskólanum Heiðarborg
Leikskólinn Heiðarborg

Stuðningsfulltrúi óskast á miðstig
Kársnesskóli

Heiðarskóli - Umsjónarkennari á miðstigi
Reykjanesbær

Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur í frístundaheimilum í Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfi
Kringlumýri frístundamiðstöð

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimili
Frístundamiðstöðin Miðberg