Leikskólinn Laugasól
Leikskólinn Laugasól

Leikskólakennari/leiðbeinandi

Leikskólakennara vantar í leikskólann Laugasól í 100% starf. Laugasól er sjö deilda leikskóli, staðsettur í Laugadalnum.

Leiðarljós leikskólans eru:

  • Virðing
  • Fjölbreytileiki
  • Sköpun

Megináherslur í menntun og uppeldisstarfi leikskólans er frjáls leikur, skapandi starf og umhverfismennt.

Við notum að mestu opinn efnivið sem er þroskandi og fjölbreytilegur. Unnið er með verðlaust efni og einnig er notað ýmislegt sem finnst í náttúrunni.

Í skapandi skólastarfi fá börnin tækifæri til að kanna og vinna með fjölbreytt leikefni og aðferðir. Áherslan er á sköpunarferlið sjálft og námið sem á sér stað þegar hugmyndir, tilfinningar og ímyndunaraflið fær að njóta sín. Hvatt er til skapandi hugsunar og sjálfstæðra vinnubragða.

Í umhverfismennt er lögð áhersla á að börnin verði læs á umhverfi og náttúru og kynnist fjölbreytileikanum í samfélagi og menningu.

Laugasól er lærdómssamfélag þar sem metnaður, áhugi og samtal eiga sér stað og hver lærir af öðrum til að bæta árangur í starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnin æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og ummönnun ungra barna
Auglýsing birt28. október 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Leirulækur 6, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar