Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.
Leikskólakennari/Leiðbeinandi í Klettaborg
Okkur vantar leikskólakennara sem vill vinna í góðum og traustum leikskóla. Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullu og faglegu starfi þar sem þroski og velferð barna er í fyrirrúmi.
Áhersluatriðin í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, leikskólalæsi og heilsuefling.
Komdu í lið með okkur!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leikskólakennari vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra. Hann fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og eða önnur uppeldismenntun
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
- Færni í mannlegum samskiptum
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af uppeldi og menntun leikskólabarna
Fríðindi í starfi
- Starfsmenn leikskóla í Borgarbyggð fá 50% afslátt af leikskólagjöldum barna sinna
- Heilsustyrkur, afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
Auglýsing birt28. ágúst 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Borgarbraut 101, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Sjálandsskóli óskar eftir dönskukennara á unglingastig
Garðabær
Leikskólasérkennari / þroskaþjálfi í Grænuborg
Leikskólinn Grænaborg
Hjalli í Hafnarfirði auglýsir eftir leikskólakennurum
Hjallastefnan leikskólar ehf.
Frístundastarfsmaður óskast
Helgafellsskóli
Leikskólastarfsfólk óskast
Helgafellsskóli
Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið- Gulahlíð
Kringlumýri frístundamiðstöð
Sérkennslustjóri - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Komdu í lið með skemmtilegu fólki í frístund Landakotsskóla
Landakotsskóli
Viltu hafa áhrif á dýrmæta einstaklinga? Komdu til okkar
Leikskólinn Sjáland
Deildarstjóri í teymisvinnu
Heilsuleikskólinn Kór
Deildarstjóri frístunda barna og unglinga
Fjarðabyggð
Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast
Lækur