

Leikskólakennari í Grænatún
Leikskólinn Grænatún óskar eftir að ráða leikskólakennara
Leikskólinn Grænatún er 3 deilda leikskóli á yndislegum stað við Fossvogsdalinn. Í leikskólanum eru 63 börn á aldrinum 1 – 6 ára.
Einkunnarorð Grænatúns eru leikur og gleði.
Við leggjum áherslu á góðan starfsanda þar sem áhersla er lögð á liðsheild, jákvæð samskipti og lausnamiðaða hugsun.
Athygli er vakin á því að Kópavogsbær hefur nýlega samþykkt 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla ásamt auknum sveigjanleika og takmörkunum í opnunartíma leikskóla í dymbilbiku, milli jóla og nýars og vetrarfríum. Hér má sjá meira um það Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogsbær (kopavogur.is)
Starfshlutfall er 100% og ráðningartími er frá 20. september 2025 eða eftir samkomulagi.
Heimasíðan okkar er http://graenatun.kopavogur.is/
- Starfið felur í sér almenna og sérkennslu.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Leikskólakennaramenntun. Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
- Góðir samskiptahæfileikar.
- Áhugasamur einstaklingur.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Gott vald á íslensku.
- Starfsfólk leikskóla getur sótt um forgang í leikskóla fyrir börnin sín auk þess að fá 40 % afslátt af leikskólagjöldum
- Starfsfólk leikskóla fá fríar máltíðir og borðar með börnunum
- Allt fastráðið starfsfólk Kópavogsbæjar á rétt á líkamsræktarstyrk og fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
- Styttri vinnuvika - Leikskólar Kópavogs loka flestir milli jóla og nýárs, í dymbilviku og vetrarleyfum og þá býðst starfsfólki að taka út hluta af uppsafnaðri vinnutímastyttingu.












