Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólakennari eða sambærileg menntun.

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólanum Geislabaugi í Grafarholti Reykjavík. Geislabaugur er 5 deilda leikskóli. Einkunnarorð leikskólans eru Virðing - Sköpun - Gleði - Jafnrétti. Geislabaugur er jafnréttisleikskóli sem starfar eftir aðalnámskrá leikskóla eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Áhersla er lögð á skapandi starf, lýðræði og gefa stelpum og strákum jöfn tækifæri til náms. Leikskólinn hefur fengið Hvatningaverðlaun skóla og frístundasviðs. Við erum metnaðarfullur og framsækinn leikskóli og horfum frekar til tækifæra frekar en hindrana. Gott samstarf er á milli skólana í hverfinu og höfum við tekið þátt í þróunarverkefni sem hafði það markmið að efla læsi í hverfinu.
Starfið er laust frá 15. ágúst 2022 .

Vilt þú koma og vera með í okkar teymi, hress og skemmtilegur starfsmannahópur.

Þú þarft að hafa brennandi áhuga á að vinna með börnum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Fríðindi í starfi
Líkamsræktarstyrkur, sundkort hjá Reykjavíkurborg, samgöngustyrkur.
Auglýsing birt20. maí 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kristnibraut 26, 113 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar