

Leikskólakennari á leikskólann Álfatún
Leikskólinn Álfatún óskar eftir að ráða leikskólakennara
Leikskólinn Álfatún er 5 deilda leikskóli á besta stað í Fossvoginum. Í leikskólanum eru 80 börn á aldrinum 1 – 6 ára.
Áherslur okkar eru málrækt – hreyfing og skapandi starf í gegnum leik. Áhugi okkar snýr að lýðræðismenntun, skapandi hugsun, menningu, dalnum okkar og umhverfisvernd.
Við leggjum áherslu á góðan starfsanda þar sem áhersla er lögð á liðsheild, heilsuvernd, jákvæð samskipti og lausnamiðaða hugsun.
Heimasíðan okkar er http://alfatun.kopavogur.is/
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun. Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
- Góðir samskiptahæfileikar
- Áhugasamur einstaklingur
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Gott vald á íslensku
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfið felur í sér almenna kennslu.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Ráðningarhlutfall og tími
Ráðningartími er frá 1. október. 2020 eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2020.
Upplýsingar gefur Linda Björk Ólafsdóttir leikskólastjóri sími 4415501.
Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.











