Dalur
Dalur
Dalur

Leikskólakennari

Leikskólinn Dalur óskar eftir leikskólakennara.

Leikskólinn Dalur Funalind 4 hóf starfsemi sína 11. maí 1998. Dalur er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1 - 5 ára.

Leikskólinn Dalur leggur megináherslu á gæði í samskiptum til að tryggja öryggi og vellíðan barna í leikskólanum. Samskipti er grundvallarþáttur í öllu starfi leikskólans.

Einkunnarorð leikskólans eru Virðing – ábyrgð – sjálfstæði

Heimasíðan okkar er: dalur.kopavogur.is

Helstu verkefni og ábyrgð
· Starfið felur í sér almenna kennslu.
· Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
· Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
· Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
· Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
· Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
· Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
· Sjálfstæð vinnubrögð.
· Góð íslenskukunnátta.

Ráðningartími og starfshlutfall
· Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 6.janúar eða eftir samkomulagi.
· Starfshlutfall er 100% .

Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.

Umsóknarfrestur er til og með 22.11. 2019.

Nánari upplýsingar veita Sóley Gyða Jörundsdóttir, leikskólastjóri og Sonja Margrét Halldórsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 4416000. Einnig má senda fyrirspurnir á [email protected]

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.

Auglýsing birt4. nóvember 2019
Umsóknarfrestur23. nóvember 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Funalind 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar