Leikskólinn Brekkuborg
Leikskólinn Brekkuborg

Leikskólakennara/starfsmann vantar í leikskólann Brekkuborg

Leikskólakennari eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa við kennslu í leikskólann Brekkuborg sem er fjögurra deilda leikskóli í Hlíðarhúsum 1 í Grafarvogi.

Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem sjálfstæði, sjálfræði og lýðræði er kjarninn í starfinu. Unnið er að því að skapa börnum hlýlegt umhverfi þar sem þau geta verið virk, skapandi og sjálfstæð.

Lögð er áhersla á gott foreldrasamstarf og góður starfsandi einkennir starf Brekkuborgar

Við erum regnbogaskóli og vinnum mikið með vináttu og virðingu.

Við erum með samskiptasáttmála Brekkuborgar.

Starfið er laust nú þegar.

Upplýsingar veitir Kristín Auður Harðardóttir leikskólastjóri í síma 4113981

Netfang: [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

Bera ábyrgð á kennslu og velferð leikskólabarna.

Menntunar- og hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.  Góð hæfni í samskiptum.

Fríðindi í starfi

36 stunda vinnuvika, sundkort, samgöngusamningur, líkamsræktarstyrkur.

Auglýsing birt2. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðarhús 142241, 500 Staður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar