Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Leiðbeinandi á frístundaheimili í Hofsstaðaskóla

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir leiðbeinendum á frístundaheimilið Regnbogann skólaárið 2024-2025. Regnboginn þjónar um 200 börnum í 1.-4. bekk og veitir þeim og foreldrum þeirra heildstæða og faglega frítímaþjónustu í samþættu skóla- og frístundastarfi. Í boði er hlutastarf eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi. Opnunartími er frá kl. 13:30 -16:30. Í frístundaheimilinu dvelja börnin eftir að skóla lýkur við leiki og ýmis verkefni.

Í Hofsstaðaskóla eru 480 nemendur í 1.-7. bekk og þar starfa um 90 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Þjónusta við nemendur er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd á faglegu frístundastarfi
•    Stýra hópum í frístundastarfi og leiðbeina börnum í leik og starfi
•    Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
•    Umhirða og frágangur á starfssvæði frístundaheimilis
•    Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi       frístundaheimilis

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Reynsla af starfi með börnum er æskileg
•    Menntun sem nýtist í starfinu er kostur
•    Íslenskukunnátta á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum
•    Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
•    Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
•    Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Fríðindi í starfi

Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk, frítt í sund, bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.

Auglýsing birt29. júlí 2024
Umsóknarfrestur9. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólabraut 154520, 675 Raufarhöfn
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar