Rarik ohf.
Rarik ohf.
Rarik ohf.

Leggðu línuna til Rarik í sumar! Sumarstarf í framkvæmdaflokki á Höfn

Laus sumarstörf í framkvæmdaflokkum okkar á Höfn!

Njóttu alls þess sem landið okkar hefur uppá á bjóða og tengdu þig við framkvæmdaflokkana okkar í sumar. Við leitum að áhugasömu sumarstarfsfólki sem langar til komast með tærnar inn fyrir dyrnar í hinum æsispennandi orkugeira. Margt af okkar starfsfólki hóf einmitt feril sinn með sumarstarfi hjá framkvæmdaflokki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Framkvæmdaflokkar okkar vinna við víðfeðmasta dreifikerfi landsins sem felur í sér fjölbreytt störf bæði innan- og utandyra. Sumarstarfsfólk okkar aðstoðar þá við tengingar há- og lágspennustrengja auk annarra tilfallandi verkefna. Framkvæmdaflokkarnir eru andlit okkar útá við, þurfa að bregðast fljótt og vel við ef eitthvað kemur uppá í dreifikerfinu og eru oft okkar helsta tenging við viðskiptavini. Því er mikilvægt að umsækjendur hafi góða samskiptafærni, áhuga á raf- eða véliðnaði, getu og vilja til að læra hratt og halda athygli og séu tilbúnir að fylgja öryggiskröfum í öllum aðstæðum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við óskum eftir stundvísu fólki sem hefur náð 18 ára aldri. Æskilegt er að vera með bílpróf og hafa stundað nám í raf- eða véliðnaði. Vinnugleði og góð tölvukunnátta eru einnig mikilvægir kostir.

Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Álaugarvegi 11
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Stundvísi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar