

Leggðu línuna til Rarik í sumar! Sumarstarf í framkvæmdaflokki á Snæfellsnesi
Laus sumarstörf í framkvæmdaflokkum okkar á Snæfellsnesi!
Njóttu alls þess sem landið okkar hefur uppá á bjóða og tengdu þig við framkvæmdaflokkana okkar í sumar. Við leitum að áhugasömu sumarstarfsfólki sem langar til komast með tærnar inn fyrir dyrnar í hinum æsispennandi orkugeira. Margt af okkar starfsfólki hóf einmitt feril sinn með sumarstarfi hjá framkvæmdaflokki.
Framkvæmdaflokkar okkar vinna við víðfeðmasta dreifikerfi landsins sem felur í sér fjölbreytt störf bæði innan- og utandyra. Sumarstarfsfólk okkar aðstoðar þá við tengingar há- og lágspennustrengja auk annarra tilfallandi verkefna. Framkvæmdaflokkarnir eru andlit okkar útá við, þurfa að bregðast fljótt og vel við ef eitthvað kemur uppá í dreifikerfinu og eru oft okkar helsta tenging við viðskiptavini. Því er mikilvægt að umsækjendur hafi góða samskiptafærni, áhuga á raf- eða véliðnaði, getu og vilja til að læra hratt og halda athygli og séu tilbúnir að fylgja öryggiskröfum í öllum aðstæðum.
Við óskum eftir stundvísu fólki sem hefur náð 18 ára aldri. Æskilegt er að vera með bílpróf og hafa stundað nám í raf- eða véliðnaði. Vinnugleði og góð tölvukunnátta eru einnig mikilvægir kostir.
Íslenska










