Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa
Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa
Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa

Laust starf samfélagsmiðlasérfræðings Þjóðkirkjunnar

Þjóðkirkjan auglýsir eftir samfélagsmiðlasérfræðingi til starfa á Biskupsstofu. Um er að ræða nýtt starf á samskiptasviði, þar sem starfsmaður mun móta stefnu Þjóðkirkjunnar sem snýr að samfélagsmiðlum og byggja upp öfluga viðveru og ásýnd hennar á öllum helstu miðlum.

Mikil áhersla er lögð á að fjölbreytnin innan kirkjunnar fái að njóta sín á samfélagsmiðlum hennar en sóknir landsins eru á þriðja hundrað og starfar Þjóðkirkjan í öllum póstnúmerum landsins. Samfélagsmiðlasérfræðingur þarf að geta og vilja ferðast innanlands til að sækja efni og innblástur sem víðast.

Frestur til að sækja um starfið er til og með 9. janúar nk. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

•     Efla viðveru og sýnileika Þjóðkirkjunnar og sókna hennar á samfélagsmiðlum.

•     Framleiða fjölbreytt efni ásamt því að styðja starfsfólk kirkjunnar við efnissköpun.

•     Veita ráðgjöf, tæknilega aðstoð og fræðslu til starfsfólks kirkjunnar.

•     Önnur tilfallandi verkefni á samskiptasviði Biskupsstofu.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

•     Þekking, reynsla og færni í notkun helstu samfélagsmiðla.

•     Mikil þekking á miðlum Meta (Facebook, Instagram) og TikTok, auk birtinga- og auglýsingakerfum Meta.

•     Framúrskarandi samskiptahæfni, góður húmor og almenn skemmtilegheit. Starfið krefst þess að tala við fólk, vera með eyrun sperrt og augun opin fyrir því fallega og skemmtilega í starfi kirkjunnar og geta miðlað því á skapandi og skemmtilegan hátt. 

•     Áhugi á starfi og hlutverki kirkjunnar. Ekki þarf að búa yfir allri þekkingu frá fyrsta degi, en einlægur áhugi á að læra er nauðsynlegur.

•     Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Fríðindi í starfi

Launakjör miðast við kjarasamning Launanefndar þjóðkirkjunnar og Fræðagarðs. 

Um vinnustaðinn

Um 230.000 Íslendingar tilheyra Þjóðkirkjunni. Þjóðkirkjan starfar í öllum póstnúmerum Íslands auk þess sem sérþjónustuprestar sinna fötluðum, föngum, heyrnarlausum og innflytjendum, sem og Íslendingum í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og víðar. Á fjórða hundrað kirkjur eru í landinu þar sem þúsundir einstaklinga sækja þjónustu og viðburði hverja viku. 

Auglýsing birt23. desember 2024
Umsóknarfrestur9. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.MyndbandagerðPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar