Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs.

Laus er til umsóknar ný staða sérfræðings í skipulagsmálum

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. leitar eftir sérfræðing í skipulagsmálum. Undir embættið heyra skipulags-, seyru- og byggingarmál sex sveitarfélaga. Við leitum af einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á skipulagsmálum. Viðkomandi þarf að vera jákvæður, ábyrgur og með góða skipulagshæfni ásamt lipurð í mannlegum samskiptum. Sérfræðingur í skipulagsmálum mun starfa í nánu samstarfi við skipulagsfulltrúa, starfsfólk og hagaðila innan sem utan embættisins með það að markmiði að stuðla að framþróun og umbótum í þessum mikilvæga málaflokki.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Ráðgjöf og upplýsingagjöf um skipulag- og lóðamál.

·         Samskipti og bréfaskrif.

·         Undirbúningur funda skipulagsnefndar, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.

·         Rýna og yfirfara skipulagsgögn.

·         Önnur tilfallandi verkefni tengd skipulags- og lóðamálum.

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.

·         Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði.

·         Þekking á opinberri stjórnsýslu.

·         Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi.

·         Hæfni í mannlegum samskiptum.

·         Góð almenn tölvukunnátta.

Auglýsing birt2. október 2025
Umsóknarfrestur20. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Laugarvatn 167638, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar