
K16 ehf
K16 er verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í viðhaldsverkefnum og nýbyggingum.
K16 er með stærstu fyrirtækjum á viðhaldsmarkaði en sinnir einnig stórum sem smáum verkefnum fyrir fyrirtæki og opinbera aðila auk eigin verkefna.
Verkefnin eru fjölmörg og einnig fjölbreytt, s.s. viðhaldsverkefni og nýbygging atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Hjá K16 er gott vinnuumhverfi, sveigjanlegur vinnutími og mjög góður starfsandi. Við leitumst eftir að hafa hjá okkur jákvætt, metnaðarfullt og lausnamiðað starfsfólk.
Lagerumsjón í Ásbrú
K16 ehf. er áreiðanlegur og metnaðarfullur byggingarverktaki sem tekur að sér viðhalds- og nýbyggingarverkefni atvinnu- og íbúðarhúsnæðis hvort sem um er ræða á útboðsmarkað fyrir opinbera aðila, fyrirtæki, húsfélög eða eigin verkefni. Starfsemi K16 er að mestu leyti á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum.
Við leitum að traustum og sjálfstæðum starfsmanni til að annast lager og vinnusvæði fyrirtækisins í Funatröð á Ásbrú.
Starfið felst í daglegri umsjón og ábyrgð á lager og vinnusvæði K16, bæði inni- og útisvæði. Viðkomandi þarf að hafa góða yfirsýn, vinna skipulega og hafa metnað fyrir því að vinnusvæðið sé snyrtilegt, vel skipulagt og öruggt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón, eftirlit og ábyrgð á daglegum rekstri lager- og vinnusvæðis K16 í Funatröð
- Skipulagning og röðun byggingarefnis, stillansa, gáma, tækja og annars búnaðar
- Móttaka á byggingarefni og búnaði frá innlendum og erlendum aðilum
- Afgreiðsla efnis, tækja og búnaðar til verkefna
- Dagleg samskipti við íslenska og erlenda starfsmenn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð færni í íslensku og ensku (krafa)
- Þekking eða reynsla af byggingariðnaði
- Vinnuvélaréttindi (kostur)
- Geta til að vinna sjálfstætt og skipulega
- Góð samskiptahæfni og ábyrgðartilfinning
- Bílpróf
Auglýsing birt7. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Funatröð 8, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Bílstjóri og lagerstarfsmaður
Vörumerking ehf

Tímabundin störf í nóvember og desember.
Dropp

Starfsmaður í frysti og kæligeymslu Aðfanga
Aðföng

Starfsmaður í vöruhúsi - BYKO Fossaleyni
Byko

Lagerstjóri og lagerstarfsmaður hjá Ormsson
Ormsson ehf

Vöruhús / lager
Icetransport

Starfsmaður í vöruhús
Raftækjalagerinn

Partýfulltrúi - Fullt starf - Helgarstarf
Rent-A-Party

Þjónustufulltrúi - vöruhús og verkstæði
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Bílstjóri og aðstoðarmaður í vöruhúsi – Fjölbreytt og líflegt starf
Egill Árnason ehf