Papco hf
Papco hf

Lagerstjóri Papco hf Reykjavík

Papco hf auglýsir eftir dugmiklum, skipulögðum og metnaðarfullum lagerstjóra. Starfið er margþætt, og lagerstjóri þarf að vera talnaglöggur, vandvirkur, skipulagður og hafa mikinn metnað fyrir starfinu. Papco er rótgróið fyrirtæki sem þjónustar mjög fjölbreyttan hóp viðskiptavina um allt land, og býður upp á mikið vöruúrval, auk eigin framleiðslu á hreinlætispappír. Hjá Papco er lögð mikil áhersla á góða samvinnu starfsfólks og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.

Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Nánari upplýsingar gefur Þórður í síma 6606700.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vörumóttaka
  • Skipulagning verkefna starfsmanna á lager
  • Skipulagning dreifingar
  • Skipulagning vöruhúss og utanumhald birgða
  • Almenn lagerstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af lagerstörfum og stjórnun er skilyrði
  • Vinnuvélaréttindi J flokkur er skilyrði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Góð hæfni til að vinna sjálfstætt, og jafnframt í hóp
  • Öguð vinnubrögð, metnaður og jákvæðni
  • Að geta talað og skrifað bæði íslensku og ensku
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stórhöfði 42, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar