
Áltak
Áltak er leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingamarkaði og hefur verið það frá stofnun þess árið 1997. Alla tíð hefur megin áhersla fyrirtækisins verið að veita heildarlausnir í álklæðningum og undirkerfum. Fyrirtækið hefur farið ört stækkandi og vöruframboð aukist til muna. Í dag býður Áltak upp á heildarlausnir í kringum klæðningar, hljóðvist, steypumót, iðnaðarhurðir, vöruhúsarekka og margt fleira. Markmiðið er að bjóða eingöngu upp á gæðaefni sem standast íslenskar aðstæður og hafa endingartíma sem mældur er í áratugum.
Áltak er hluti af Fagkaupum sem rekur verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindra, Vatn & veitur, S. Guðjónsson, K.H. Vinnuföt, Varma og Vélaverk, Ísleif, Hagblikk, Fossberg og DS Lausnir.
Hjá Fagkaupum starfa rúmlega 300 einstaklingar og aðsetur fyrirtækjana er í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og á Akureyri.
Fyrirtækið leggur áherslu á góða vinnustaðamenningu, samstöðu og samheldni meðal starfsfólks. Unnið er eftir jafnréttis og jafnlaunastefnu félagsins sem einnig hefur hlotið jafnlaunavottun.
Þá er unnið samkvæmt mannauðsstefnu Fagkaupa þar sem tækifæri eru til starfsþróunnar og vaxtar í starfi með m.a. öflugu fræðslustarfi og fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins. Áhersla lögð á jákvætt, hvetjandi og öruggt starfsumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks er haft að leiðarsljósi.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.

Áltak óskar eftir söluráðgjafa Doka
Áltak óskar eftir öflugum, lausnamiðuðum og þjónustulunduðum söluráðgjafa fyrir Doka steypumótaleigu. Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur bæði söluhæfni og tæknilega þekkingu á steypumótum. Doka-mótaleiga Áltaks þjónustar helstu verktaka landsins og þróast hratt í átt að auknum gæðum, betra skipulagi og sterkari þjónustu. Við leitum að aðila sem vill vera lyklamaður í þeirri uppbyggingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita faglega ráðgjöf til viðskiptavina um Doka mótakerfi, fylgihluti og notkun þeirra
- Tilboðsgerð, leiga, sala móta og fylgihluta og sinna eftirfylgni
- Meta þarfir viðskiptavina og leiða þá í gegnum lausnir Doka
- Umsjón innkaupa móta og fylgihluta
- Taka þátt í skipulagi, skráningu og gæðaeftirliti með mótum og fylgihlutum
- Vinna náið með Doka-teyminu, lager- og framleiðslustjóra um ástand, umhirðu, viðhald og birgðastöðu
- Halda góðu sambandi við lykilviðskiptavini, sinna vettvangsferðum og greina tækifæri
- Tryggja að öryggiskröfur og verklag sé í samræmi við Doka-staðla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu, helst innan byggingariðnaðar, mótaleigu eða mannvirkjagerðar
- Þekking eða reynsla af Doka mótum, steypumótum almennt eða smíðamenntun er sterkur kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Tæknileg innsýn og færni til að læra á sérhæfð kerfi
- Góð almenn tölvufærni
- Bílpróf nauðsynlegt
- Menntun sem nýtist í starfi
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Atvinnu hjá sterku og vaxandi fyrirtæki innan byggingariðnaðar
- Öflugt og samheldið Doka-teymi með skýra framtíðarsýn
- Mjög fjölbreytt verkefni og tækifæri til að þróast áfram sem sérfræðingur
- Nánar samstarf við alþjóðlega aðila (Doka) og tækifæri til þjálfunar
- Samkeppnishæf laun og góð starfskjör
Að auki bjóðum við góðan starfsanda, góð teymi og tækifæri til vaxtar. Líkamsræktarstyrkur, niðurgreiddur hádegismatur og öflugt starfsmannafélag.
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Fossaleynir 8, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturHeiðarleikiHreint sakavottorðÖkuréttindiSkipulagSnyrtimennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Byggingarstarfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Starfsmaður við þrif, ræstingar og lagerstörf
Örninn

Lagerstarfsmaður í Hafnarfirði - Tímabundið
Steypustöðin

Holiday Home cleaning and maintenance , couple needed
Eldhraun Holiday Homes

Sumarstarf í verslun á Akureyri
Þór hf

Sumarstarf á verkstæði á Akureyri
Þór hf

Starfsmaður óskast á lager - framtíðarstarf
Kjarnavörur hf

Lagerstarf / Umsjónaraðili smávörulagers
Ormsson ehf

Sumarstarf flokkstjóra hjá ÍBR
Íþróttabandalag Reykjavíkur

Full Time Sales Assistant
Sports Direct Lindum

Smiður/umsjónarmaður fasteigna
Byggingafélag námsmanna

Fullt starf hjá Gæludýr.is á AKUREYRI
Waterfront ehf