GER verslanir
GER verslanir

Lagerstarf

GER verslanir er fjölskyldurekið fyrirtæki sem þjónustar verslanir Húsgagnahallarinnar, Betra baks, Dorma og Hästens.

Við leitum að reyndum og þjónustuliprum einstaklingum til starfa í miðlægu vöruhúsi okkar á Korputorgi.

Við erum að leita að þér ef þú:

  • ert dugleg/ur, stundvís og heilsuhraust/ur
  • ert sterk/ur í mannlegum samskiptum og jákvæð/ur
  • ert skipulögð/lagður og vinnur vel í hóp

Um er að ræða líflegan vinnustað þar sem nóg er að gera fyrir duglegan starfsmann. Skilyrði er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri og hafi góða reynslu af lagerstörfum.

Um er að ræða fullt starf alla virka daga.

Starfsferilskrá er æskilegt fylgigagn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla pantana (tínsla, pökkun, merking, flutningur og afhending)
  • Móttaka birgða (móttökutalning, merking, staðsetning og frágangur)
  • Önnur tilfallandi lagerstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegum störfum
  • Lyftararéttindi er kostur
  • Frumkvæði, jákvæðni og hæfni í samskiptum
  • Skipulagshæfileikar, nákvæmni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Geta til að vinna undir álagi
Auglýsing stofnuð25. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Blikastaðavegur 2-8 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.Lyftarapróf
Starfsgreinar
Starfsmerkingar