
Sumarstörf - Kópavogsbær
Kópavogsbær býður upp á fjölbreytt sumarstörf á hverju ári fyrir 18 ára og eldri. Í boði eru m.a. störf í Þjónustumiðstöð, garðyrkju, skógrækt, sundlaugum, íþróttavöllum, sumarnámskeiðum fyrir börn, skapandi sumarstörf og á bæjarskrifstofum svo eitthvað sé nefnt.

Laganemar í sumarstarf hjá Kópavogsbæ
Kópavogsbær óskar eftir að ráða laganema í sumarstarf í lögfræðideild bæjarins.
Um er að ræða tímabundið sumarstarf / átaksverkefni Vinnumálastofnunar í tvo og hálfan mánuð á tímabilinu 15.maí – 15. september.
Skilyrði er að umsækjendur séu 18 ára á árinu eða eldri, séu skráðir í nám að hausti 2021 eða skráðir í nám á vorönn 2021. Umsókn þarf að fylgja staðfesting á námi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Hafa lokið a.m.k. tveimur árum til B.A. prófs í lögfræði
Staðgóð þekking á opinberri stjórnsýslu
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti
Lipurð í mannlegum samskiptum
Helstu verkefni og ábyrgð
Lögfræðileg ráðgjöf á starfssviði sveitarfélagsins
Gerð álitsgerða
Afgreiðsla stjórnsýsluerinda
Umsagnir til nefnda
Auglýsing birt3. maí 2021
Umsóknarfrestur13. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


