Ráðgjafar- og greiningarstöð
Ráðgjafar- og greiningarstöð

Læknir

Ráðgjafar- og greiningarstöð leitar að öflugum lækni til starfa sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar. Barnalæknar auk unglækna sem eru í sérfræðinámi í barnalækningum eða á leið í slíkt nám eru sérstaklega hvattir til að sækja um.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi
Sérfræðileyfi í barnalækningum er æskilegt en ekki skilyrði
Reynsla af þverfaglegu starfi við mat og ráðgjöf
Reynsla og áhugi á fræðslu og rannsóknum
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
Góð færni við að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining, ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarlegar raskanir í taugaþroska. Hlutverk læknis er m.a. heilsueftirlit, orsakagreining og ráðgjöf til foreldra og þjónustuaðila
Vinna í þverfaglegu teymi. Læknir tekur þá í athugun á börnum í samstarfi við aðra sérfræðinga
Þátttaka í fræðslu og rannsóknum á vegum stofnunarinnar
Auglýsing birt2. maí 2022
Umsóknarfrestur16. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 5, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar