

Kvöldbílstjórar á höfuðborgarsvæðinu
Pósturinn leitar að bílstjórum í kvöldkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu.
Starfið felur í sér að koma sendingum til skila til viðskiptavina þar sem unnið er í tímavinnu 3-5 kvöld í viku og er vinnutíminn frá 17:30 til 22:30.
Hæfniskröfur:
· Bílpróf er skilyrði
· Sterk ábyrgðartilfinning
· Grunn tölvukunnátta
· Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
· Lausnamiðuð hugsun
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Ragnars Guðjohnsen, deildarstjóri dreifingar, [email protected]
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í fyrirrúmi. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálarnar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Enska










