

Kópavogsskóli - frístundaleiðbeinandi
Frístundaleiðbeinandi óskast
Við í Kópavogsskóla leitum að lífsglöðum og áhugasömum frístundaleiðbeinanda til að slást í okkar hóp og taka þátt í skemmtilegu skólastarfi. Starfið hentar mjög vel með námi!
Starf frístundaleiðbeinanda felst í leik og starfi með börnum og gæslu jafnt innan húss sem utan eftir að stundaskrá lýkur.
Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 370 nemendur og 70 starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. til 4. bekk.
Lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og ýmis þróunarverkefni eru í gangi.Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Um er að ræða 50% framtíðarstarf
- Vinnutími er frá kl. 13 til 17 og hentar því mjög vel sem aukavinna með skóla
- Ráðningartími: frá 11. ágúst 2020
Menntunar og hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta
- Uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg.
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður og drífandi.
- Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Mjög viðamiklar upplýsingar um Kópavogsskóla og skólastarfið er að finna á www.kopavogsskoli.is.
Upplýsingar gefur Ásthildur Guðmundsdóttir forstöðumaður frístundar í síma 4413432 og Guðmundur Ásmundsson skólastjóri í síma 4413402.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.











