
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Yfirmaður á gæsluvelli
Yfirmaður á gæsluvelli óskast í sumarstarf á gæsluvöll sem er ætlaður börnum frá 20 mánaða til 6 ára.
Daglegur opnunartími er frá kl. 10 til 12 og 13:30 til 16:30.
Tímabilið er frá 11. júlí til 9. ágúst.
Helstu verkefni
- Yfirmaður gæsluvallar ber ábyrgð á daglegu starfi og rekstri, verkstjórn annarra starfsmanna ásamt umönnun og öryggi barna.
- Næsti yfirmaður er daggæslufulltrúi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf æskilegt
- Reynsla að vinna með börnum
- Góð samskiptahæfni, samviskusemi og stundvísi
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
Nánari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Starfsmannafélagi Kópavogs.
Nánari upplýsingar gefur María Kristjánsdóttir, daggæslufulltrúi í síma: 441-0000
Auglýsing birt11. febrúar 2019
Umsóknarfrestur3. mars 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hnoðraból
Borgarbyggð

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Leikskólakennari - Hamrar
Leikskólinn Hamrar

Spennandi starf í frístund í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Hraunsel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari við Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi
Borgarbyggð

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari í Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur