Kópasteinn
Kópasteinn
Kópasteinn

Kópasteinn óskar eftir kennara

Leikskólinn Kópasteinn óskar eftir kennara.

Kópasteinn tók til starfa árið 1946. Skólinn er 3ra deilda skóli með 68 börn á aldrinum 1 - 5 ára. Áherslur í starfinu er á frjálsan leik í allri sinni fjölbreyttni, lífsleikni, tónlist og málrækt.

Einkunnaroeð skólans eru Gaman saman sem endurspeglar starfið okkar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
Sjálfstæð vinnubrögð.
Góð íslenskukunnátta.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Starfið felur í sér almenna kennslu.
Auglýsing birt28. febrúar 2023
Umsóknarfrestur19. mars 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hábraut 3, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar