
Leikskólinn Reynisholti
Í Reynisholti eru samtímis 86 börn á fjórum deildum sem bera nöfnin Bjartilundur, Geislalundur, Sunnulundur og Stjörnulundur.
Leikskólinn Reynisholt er staðsettur í fallegum trjálundi í næsta nágrenni við Reynisvatn. Hann var opnaður formlega 30. nóvember 2005 og hefur leikskólastjóri starfað frá því í ágúst 2005. Þann 26. október komu fyrstu börnin í hús og var strax hafist handa við að innleiða þær áherslur sem leikskólinn lagði upp með en það er lífsleikni í skólastarfi. Sumarið 2008 var hafist handa við byggingu fjórðu deildarinnar og var hún tekin í notkun í lok október 2008. Umhverfismennt er stór þáttur í starfi leikskólans og flöggum við grænfánanum í þriðja sinn haustið 2014.
Komdu í stjórnendateymið í Reynisholt
Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Reynisholt. Reynisholt er fjögurra deilda leikskóli við Gvendargeisla 13, 113 Reykjavik. Þar er lögð áhersla á lífsleikninám í gegnum snertingu og jóga, umhverfismennt og bernskulæsi. Einnig er unnið í teymum að áherslum leikskólans.
Um er að ræða ótímabundið starf og er staðan laus strax eða eftir samkomulagi.
Hér má sjá kynningarmyndband https://vimeo.com/360560869
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf kennara
Leikskólakennaramenntun æskileg
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Fríðindi í starfi
Lægri leikskólagjöld í Reykjavík
Samgöngusamningur
Menningarkort
S - kort
Heilsustyrkur
Auglýsing birt22. nóvember 2022
Umsóknarfrestur6. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gvendargeisli 13, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólinn Krílakot: Leikskólakennarar
Dalvíkurbyggð

Barnaskólinn í Hafnarfirði - leikskólakennari/leiðbeinandi með 5 ára börn
Hjallastefnan

Leikskólinn Barnaborg í Þingeyjarsveit leitar að leikskólakennara
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Kópahvoll óskar eftir kennurum vegna stækkunar
Kópahvoll

Leikskólakennari í Tjörn
Leikskólinn Tjörn

Leikskólinn Tjörn óskar eftir leikskólakennara til starfa.
Leikskólinn Tjörn

Leikskólakennari óskast í allt að 100% starf
Leikskólinn Ylur

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Grunnskólinn í Borgarnesi - kennarar óskast til starfa út skólaárið 2026-2027
Borgarbyggð