

Kjarnastýra/deildarstjóri - leikskólakennari
Viltu koma og starfa með okkur í kærleiksríku og metnaðarfullu skólastarfi, þar sem kærleikur og agi haldast hönd í hönd.
Við leitum að lífsglöðum og skapandi leikskólakennurum sem hafa áhuga á að iðka jafnrétti, sjálfbærni og lýðræði í skólastarfi.
Leikskólinn Gimli er með þjónustusamning við Reykjanesbæ og fagsamning við Hjallastefnuna. Skólinn vinnur eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar þar sem lögð er áhersla á einfalt og jákvætt starfsumhverfi, með vináttu,virðingu, kærleika og gleði að leiðarljósi.
Við leikskólann starfar samstillt og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á að skapa góðan starfsanda og mæta fjölbreytileika barnahópsins, þar sem stoðirnar þrjár - jafnrétti, lýðræði og sköpun eru hafðar að leiðarljósi.
Leikskólinn Gimli er lítill skóli með stórt hjarta.
Leikskólakennari vinnur að menntun og uppeldi leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu kjarnastýru/deildastjóra og leikskólakennara
Leikskólakennaramenntun
Góð færni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Sipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
Íslenskukunnáttu á stigi C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum sjá slóð: https://www.rannis.is/media/islenskukennsla/Evropski-tungumalaramminn.pdf
Frítt fæði
40 % afsláttur af leikskólagjöldum fyrir börn starfsfólks
Styttri vinnuvika
5 vikna sumarfrí
Haust, vetrar og páskafrí
Lokað á milli jóla- og nýárs
Íslenska










