Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing

Kjarkur endurhæfing óskar eftir íþróttafræðingi

Kjarkur endurhæfing óskar eftir íþróttafræðingi til starfa. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem áhersla er lögð á góða teymisvinnu. Starfsemi Kjarks endurhæfingar er í mikilli þróun og tækifæri til að taka þátt í umbótastarfi.

Kjarkur endurhæfing veitir þverfaglega einstaklingsmiðaða endurhæfingu fyrir hreyfihamlaða einstaklinga sem glíma við tauga- og heilaskaða. Boðið er upp á endurhæfingu í dagþjónustu sem og í sólarhringsþjónustu.

Hjá Kjarki endurhæfingu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga, svo sem iðjuþjálfar, sálfræðingur, hjúkrunarfræðingar, talmeinafræðingur, sjúkraþjálfari, íþróttafræðingur, félagsráðgjafi, sjúkraliðar og annað sérhæft starfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc/B.Ed - gráða í íþrótta- og heilsufræði
  • Góð íslenskukunnátta
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og jákvæðni
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Lausnamiðun
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hátún 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar