

Kennsla í smiðju; hönnun, sköpun og tækni í Salaskóla!
Viltu vera hluti af frábærum hópi kennara í Salaskóla?
Við leitum að kennara í smiðjukennslu, með áherslu á hönnunarhugsun, sköpun og tækni. Viðkomandi getur fengið að hafa áhrif á áhersluatriði í kennslu og þróun greinarinnar. Viðkomandi mun vinna í samstarfi við kennara í list- og verkgreinateymi skólans.
Í Salaskóla vinna kennarar saman í teymum að kennslu og við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu. Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í starfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og frá og með nýju skólaári verða nemendur um 500 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa um 100 starfsmenn.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Ráðning er frá 1. ágúst 2025, tímabundið til eins árs.
- Um 100% starf er að ræða en möguleiki á um 80% starfshlutfalli ef hentar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun með áherslu á list- og verkgreinar, upplýsingatækni, tækni- og hönnun/sköpun eða skyldar greinar.
- Kennsluréttindi og reynsla af kennslu á grunnskólastigi. Ef ekki tekst að ráða kennara með kennsluréttindi verður skoðað að ráða hæfan leiðbeinanda í kennslu tímabundið.
- Þekking og reynsla af hönnunarhugsun (design thinking), nýsköpun og STEAM/STEM-verkefnum er kostur.
- Reynsla af notkun stafrænnar tækni í kennslu, s.s. 3D-teikningu, þrívíddarprentun, vinylskera, smáforritun eða rafrænum lausnum sem styðja við sköpun og lausnaleit er kostur.
- Frumkvæði og skapandi hugsun við þróun verkefna og aðlögun að ólíkum nemendahópum.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, faglegur metnaður og sveigjanleiki í að takast á við fjölbreyttar aðstæður.
- Sterk samskiptahæfni og færni í að mynda jákvæð tengsl við nemendur og samstarfsfólk.
- Þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni sem nýtist gagnvart fjölbreyttum nemendahópi og í teymisvinnu.
- Góð teymisfærni og áhugi á að vinna þverfaglega með öðrum kennurum og starfsfólki skólans með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Skipulagshæfni, ábyrgð og stundvísi.
- Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans, leggja sitt af mörkum í skólaþróun og taka virkan þátt í teymiskennslu og samstarfi innan skólasamfélagsins.
- Geta til að kenna á íslensku og eiga samskipti við nemendur og samstarfsfólk á íslensku.
Nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.
Upplýsingar gefur Kristín Sigurðardóttir skólastjóri, [email protected], sími 840-2393.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.












