

Kennari í Kóraskóla
Við í Kóraskóla leitum að skapandi, faglegum og áhugasömum kennara til að taka þátt í framsæknu skólastarfi með okkur.
Kóraskóli tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru 280 nemendur í 8.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþætt þemanám, teymiskennslu og samkennslu.
Annast kennslu nemenda á unglingastigi í nánu samstarfi með árgangateymi.
Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
Vinnur samkvæmt stefnu skólans.
Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
Þekking og reynsla af teymiskennslu
Þolinmæði og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Framsækni í kennsluháttum
Sjálfstæði, drifkraftur og brennandi áhugi fyrir skólaþróun
Góð íslenskukunnátta
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sundlaugar Kópavogs.
Íslenska










