Regnboginn
Regnboginn
Regnboginn

Kennari / háskólamenntaður einstaklingur - við leitum að dásamlegum samstarfsaðila

Regnboginn leikskóli óskar eftir að ráða kennara í 100% stöðu.

Ef þú ert að leita að faglegum og notalegum vinnustað ásamt frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig. Áhersla er lögð á góða mönnun, jákvæðan og skemmtilegan skólabrag.

Regnboginn er 3ja deilda, einkarekinn leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík. Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi, mál og læsi.

Kíktu endilega á heimasíðuna okkar fyrir nánari upplýsingar: www.regnbogi.is og þér er velkomið að hafa samband sé áhugi á að koma og kíkja til okkar.

Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur.

Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Meðal áherslna er að skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitsemi, vináttu og kærleika og stuðla þannig að góðum samskiptum.

Okkar sýn er að öll börn eru sterk og hæfileikarík, hvert á sinn hátt.

Nánari upplýsingar veitir Fanney skólastjóri, gegnum netfangið [email protected] og Sigríður eigandi, gegnum netfangið [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að stuðla að velferð barna
  • Þátttaka í teymisstarfi, foreldrasamskiptum og faglegum verkefnum skólans
  • Tileinkar sér og vinnur skv. stefnu Regnbogans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara
  • Reynsla af leikskólastarfi eða starfi með börnum 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum - gleði, virðing, umhyggja
  • Frumkvæði í starfi og stundvísi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
Auglýsing birt8. ágúst 2025
Umsóknarfrestur11. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bleikjukvísl 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar