

Kennari á yngsta stig - Dalskóli
Dalskóli í Úlfarsárdal auglýsir eftir kennara á yngsta stig, í tímabundið starf frá áramótum. Um er að ræða 70-100% stöðu.
Dalskóli er samrekinn leik-, grunn- og frístundaskóli með um 600 börnum á leik- og grunnskólaaldri og 130 starfsmönnum. Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Í Dalskóla er mikið um þemabundið smiðjustarf í samfélags- og náttúrugreinum auk samvinnu kennara. Í 7.-10 bekk er verið að þróa faggreinakennslu og þverfagleg samvinnuverkefni í anda aðalnámskrár. Dalskóli er þróunarskóli í leiðsagnarnámi. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.











