Djúpavogsskóli
Djúpavogsskóli
Djúpavogsskóli

Kennarar óskast til starfa

Vegna fjölgunar í okkar góða samfélagi auglýsir Djúpavogsskóli eftir kennurum sem gætu hafið störf um áramót.

Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með rúmlega 90 nemendum. Skólinn vinnur í takt við hugmyndafræði Cittaslow og leggur mikla áherslu á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga. Skólinn er í mikilli þróun með áherslur á teymiskennslu, úti- og grenndarnám, núvitund og nýskapandi vinnu. Við leitum að kennurum sem hafa farsæla kennslureynslu og eru tilbúnir að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.

Eftirtalin störf eru auglýst:

  • Stærðfræðikennsla á unglingastigi
  • Íslenskukennsla á unglingastigi
  • Dönskukennsla á unglingastigi
  • Hönnun- og smíði á mið- og unglingastigi
  • Umsjónarkennari á yngsta- og unglingastigi
  • Náms- og starfsráðgjafi
Menntunar- og hæfniskröfur
Kennsluréttindi er skilyrði.
Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
Faglegur metnaður.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Áhugi á að starfa í teymiskennslu.
Gott vald á íslenskri tungu og áhugi á að nýta upplýsingatækni í kennslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
Auglýsing birt22. október 2021
Umsóknarfrestur21. nóvember 2021
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Varða 6, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar