

Kennarar óskast í Brúarásskóla
Auglýst er eftir grunnskólakennurum í hlutastarf eða fullt starf. Um er að ræða kennslu á öllum stigum en einkum á yngsta stigi. Kennarar sem hafa reynslu af því að kenna greinar á borð við dönsku og textílmennt eru sérstaklega hvattir til að sækja um.
Brúarásskóli er samrekinn grunn- og leikskóli í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði. Í skólanum er lögð áhersla á samþættingu námsgreina í gegnum fjölbreytt þemaverkefni sem dreifast yfir veturinn. Mikið er lagt upp úr tjáningu og framsetningu verkefna sem nemendur ljúka. Verkgreinum er gert hátt undir höfði í skólanum og boðið upp á fjölbreyttar valgreinar fyrir nemendur í 6.-10 bekk. Skólinn leggur auk þess ríka áherslu á útivist og hreyfingu en góður íþróttasalur er í skólanum og auk þess sparkvöllur og ærslabelgur sem nýtast nemendum vel.
- Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár í samráði við aðra kennara og skólastjóra.
- Taka virkan þátt í mótun skólastarfsins með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Kennsluréttindi.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Góð hæfni til samvinnu með börnum og fullorðnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Gott vald á íslenskri tungu og áhugi á að nýta upplýsingatækni í kennslu.
- Hreint sakavottorð.
Við skólann eru íbúðir í eigu sveitarfélagsins sem starfsfólk getur leigt.












