KIM ENDURHÆFING
KIM ENDURHÆFING

K!M ENDURHÆFING leitar að yfirsjúkraþjálfara

Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan yfirsjúkraþjálfara tengt heilsu- ,vinnuverndar-, og öldrunarþjónustu í starfsstöð okkar á Akureyri. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en um leið hluti af sterku teymi.

Ef þú ert árangursdrifinn og metnaðarfullur sjúkraþjálfari, tilbúinn að takast á við áskoranir þá gæti þetta verið tækifæri fyrir þig. Um er að ræða stöðugildi þar sem starfshlutfall getur verið á bilinu 70-100% þar sem unnið er á dagvinnutíma.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Markmið allrar þjónustu sem veitt er á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilunum er að tryggja öryggi og vellíðan íbúa og standa vörð um sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðingu.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýrir daglegum rekstri og skipulagi sjúkraþjálfunar á hjúkrunarheimilunum, með áherslu á gæði þjónustu og velferð íbúa
  • Veitir faglega forystu og handleiðslu til sjúkraþjálfara og annars starfsfólks sem kemur að hreyfingu og endurhæfingu íbúa
  • Tryggir heildstæða og einstaklingsmiðaða þjónustu sem styður við hreyfigetu, sjálfstæði og lífsgæði íbúa
  • Eflir og viðheldur góðu samstarfi við hjúkrunarfræðinga, lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk til að tryggja samfellu í þjónustu og örugga umönnun
  • Þróar og innleiðir verklag, gæðaviðmið og árangursmælingar í sjúkraþjálfun í öldrunarþjónustu
  • Metur þörf fyrir þjónustu, forgangsraða verkefnum og fylgja eftir meðferðaráætlunum íbúa
  • Tekur þátt í þróunar- og umbótaverkefnum sem tengjast öldrunarþjónustu og endurhæfingu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilt sjúkraþjálfarapróf og íslenskt starfsleyfi landlæknis
  • Haldbær starfsreynsla er skilyrði
  • Reynsla og/þekking á meðferð og greiningu stoðkerfissjúkraþjálfunar
  • Stjórnunarreynsla og leiðtogafærni er æskileg
  • Hæfni til þess að vinna í þverfaglegu teymi
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Færni í notkun upplýsingatækni
  • Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
  • Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt6. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar