

Jólastarfsfólk! 80% og almenn hlutastörf
Við leitum að jólastarfskrafti í 80% starf í Smáralind og í hlutastörf í allar verslanir okkar á höfuðborgarsvæðinu. Ertu jólabarn? Ertu sveigjanleg/ur, áreiðanleg/ur og hress? Vertu þá með okkur á skemmtilegasta, annasamasta og hátíðlegasta tíma ársins!
Við viljum að það sé gaman í Flying Tiger Copenhagen – hvort sem um viðskiptavini eða starfsfólk er að ræða.
Ert þú týpan sem getur gert heimsókn í Flying Tiger Copenhagen að skemmtun, afgreitt viðskiptavini okkar, haldið hillunum hreinum, áfylltum og fínum og passað upp á að búðirnar okkar séu alltaf í toppstandi og aðlaðandi? Kemur ekki of seint og finnst gaman að hafa nóg að gera?
Við leitum að starfsfólki (16 ára og eldri) í tímabundin hlutastörf í október, nóvember, desember og janúar með möguleika á áframhaldandi hlutastarfi.
Hljómar eins og starf fyrir þig? Ekki bíða! Sendu inn umsókn.











