
Hagaskóli
Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með rúmlega 600 nemendur í 8. til 10. bekk og um 80 starfsmenn þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, skapandi verkefni og leiðsagnarnám.
ÍSAT kennari í Hagaskóla
Laus er til umsóknar starf kennara í íslensku sem öðru tungumáli við Hagaskóla skólaárið 2026–2027. Um er að ræða 100% stöðu.
Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með rúmlega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.
Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf fyrir kennslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda sem eru af erlendum uppruna.
- Aðlaga nám og námsumhverfi fyrir nemendur sem eru af erlendum uppruna.
- Stuðla að velferð nemenda og veita þeim aðgang að fjölbreyttu námi.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og öðru samstarfsfólki.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara.
- Góð samskiptafærni og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
- Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fornhagi 1 Hagaskóli , 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari óskast á miðstig í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilsstöðum - Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Hjallastefnan

Vegna forfalla óskast kennarar til starfa við Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli

Mýrarhúsaskóli auglýsir þrjár stöður.
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennarar óskast
Kópasteinn

Ísat kennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari í Grænatún
Grænatún