ÍR
ÍR

ÍR leitar eftir rekstrarstjóra

Íþróttafélag Reykjavíkur óskar eftir Rekstrarstjóra.

Rekstrarstjóri ÍR ber ábyrgð á mannvirkjum í eigu og í rekstri ÍR. Rekstrarstjóri annast daglegan rekstur og skal ávallt leitast við að reka mannvirki félagsins á sem hagkvæmastan hátt. Rekstrarstjóri hefur yfirumsjón með ráðningu starfsmanna sem sinna vaktþjónustu í mannvirkjum í samstarfi við framkvæmdastjóra félagsins. Rekstrarstjóri heldur utan um verkáætlanir og verkefnalista starfsmanna sem og tryggir að allar vaktir séu mannaðar.

Um fullt starf er að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af starfsmannahaldi og verkstjórn.
Reynsla í stjórnun og samningagerð kostur.
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
Frumkvæði, faglegur metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.
Þekking á starfsemi íþróttafélaga er kostur.
Mjög góð tölvukunnátta og færni í íslensku í ræðu og riti.
Hreint sakavottorð í samræmi við Æskulýðslög nr. 70/2007.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast daglegan rekstur mannvirkja.
Starfsmannahald í mannvirkjum.
Verkstýring starfsmanna ásamt eftirfylgd.
Hefur yfirumsjón og eftirlit með mannvirkjum og ber ábyrgð á viðhaldi.
Yfirumsjón með innkaupum á rekstrar- og hreinlætisvörum fyrir mannvirki.
Samskipti við ýmsa aðila s.s. Reykjavíkurborg og iðnaðarmenn.
Kostnaðareftirlit og samningagerð.
Sér um miðlun upplýsinga til stjórnar, starfsmanna, þjálfara og annarra aðila.
Önnur tilfallandi verkefni.
Auglýsing birt3. október 2022
Umsóknarfrestur10. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skógarsel 12, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Starfsmannahald
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar