
Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.
Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri.
Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma.
Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.

Innkaupafulltrúi
Innkaupafulltrúi starfar bæði sjálfstætt og í nánu samstarfi við samstarfsfólk og því er mikil áhersla lögð á lausnamiðaða hugsun og þjónustulund.
Helstu verkefni
- Viðhalda gæðum gagna og skráningu
- Upplýsingagjöf innkaupa til hagaðila
- Afstemming innkaupa og skráning pantana
- Stuðningur við tollaafgreiðslu
- Samskipti við innlenda og erlenda birgja
Hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af innkaupum og birgðastýringu er kostur
- Samskiptafærni og þjónustulund
- Lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Í boði er fullt starf sem hentar öllum kynjum sem náð hafa 20 ára aldri og eru með hreint sakavottorð. Vinnutími er 08:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga, stytting vinnuviku er á föstudögum.
Umsóknafrestur er til og með 22. janúar 2026. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum er svarað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Guðrún Lárusdóttir, deildarstjóri í síma 580-7000.
Fríðindi í starfi
- Fimm stjörnu mötuneyti með matreiðslumeistara og matráði
- Við tryggjum að þú fáir þjálfun, símenntun og aðgang að þeirri þekkingu sem til þarf
- Öflugt starfsmannafélag
- Samgöngustyrkur
Auglýsing birt13. janúar 2026
Umsóknarfrestur22. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingÁreiðanleikiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiVöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)



