
Vesturbyggð
Vesturbyggð er á sunnanverðum Vestfjörðum og samanstendur af þremur þéttbýliskjörnum, Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal og auk þess sveitir þar í kring. Einstök náttúrufegurð prýðir sunnanverða Vestfirði og hér er ótal margt að sjá og upplifa. Í Vesturbyggð er öflugt atvinnulíf, fjölbreytt þjónusta og gott mannlíf. Góð þjónusta er í sveitarfélaginu, öflugt æskulýðsstarf, leikskólar, íþróttasvæði, verslanir, sjúkrahús, verkstæði, vélsmiðjur, trésmíðaverkstæði, bíó, ferðaþjónusta og fl. Náttúrufegurð er mikilfengleg, en m.a. Rauðisandur og Látrabjarg er innan sveitarfélagsins. Möguleikar til útivistar, félagsstarfa, íþrótta og afþreyingar eru fjölmargar. Vesturbyggð tekur vel á móti nýjum íbúum!

Iðjuþjálfi/Þroskaþjálfi í Vesturbyggð
Vesturbyggð auglýsir eftir iðjuþjálfa/þroskaþjálfa til starfa í grunn- og leikskólum Vesturbyggðar. Um er að ræða afleysingastarf í eitt ár.
Vesturbyggð er samsett af tveim byggðarkjörnum, Bíldudal og Patreksfirði og er grunnskóli og leikskóli á hvorum stað. Starfið felur í sér að starfa með börnum í þessum skólum
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar eða iðjuþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
Reynsla af starfi með börnum og unglingum með margvíslegan vanda
Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
Faglegur metnaður
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Reynsla af teymisvinnu kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna með nemendum sem búa við margvísleg fjölþætt vandamál
Gerð einstaklings- og hópáætlana fyrir nemendur og eftirfylgd með þeim
Starfar í teymi með foreldum og kennurum
Skipuleggur starf með nemanda í samráði við umsjónakennara
Auglýsing birt1. júlí 2021
Umsóknarfrestur2. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Þroskaþjálfi - iðjuþjálfi
Specialisterne

Kennari óskast til starfa
Leikskólinn Sjáland

Þorláksskóli leitar að fagfólki eða stuðningsfulltrúa
Þorláksskóli

Teymisstjóri á heimili fyrir börn
Sveitarfélagið Árborg

Stuðningsfulltrúi í Vinnu og virkni
Ás styrktarfélag

Starfsmaður í ráðgjöf á velferðarsviði Húnabyggðar
Húnabyggð

Iðjuþjálfi - Hrafnista Hraunvangi
Hrafnista

Þroskaþjálfi eða atferlisfræðingur í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Urriðaból I