

Iðjuþjálfi á skrifstofu þjónustu og sértækrar ráðgjafar
Skrifstofa þjónustu og sértækrar ráðgjafar leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf iðjuþjálfa. Iðjuþjálfi er hluti af ráðgjafateymi skrifstofu þjónustu og sértækrar ráðgjafar.
Áhersla er á að veita faglega ráðgjöf til einstaklinga, aðstandenda og stofnana, meta þjónustuþörf, meta þörf fyrir og sækja um stoðtæki og gera þjónustu- og stuðningsáætlanir með notendum. Í starfinu felst einnig skráning og utanumhald upplýsinga og aðkoma að þróun og aðlögun þjónustu.
Unnið er eftir þeim meginhugmyndum sem birtast í hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og mannréttindasáttmálum sem Ísland er aðili að.
- BS gráða í iðjuþjálfun
- Reynsla af starfi með eldra fólki er kostur
- Reynsla af notkun matstækja er æskileg
Við leitum að lausnarmiðuðum einstaklingi með leikni í mannlegum samskiptum. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Starfshlutfall er 100%
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til 6. mars nk.
Frekari upplýsingar veitir Kristín Þ. Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri s. 4410000, [email protected]




