ICEWEAR
ICEWEAR
ICEWEAR

Icewear leitar að öflugum verslunarstjóra

Icewear leitast eftir að ráða til starfa drífandi og metnaðarfullan verslunarstjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Helstu verkefni:

Störf verslunarstjóra Icewear eru fjölbreytt og spennandi. Verslunarstjóri þarf að sinna margvíslegum verkefnum í daglegum störfum og þarf að geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og útsjónarsemi.

Starfið felst m.a. í almennum verslunarstörfum og sölumennsku, starfsmannahaldi, birgðastýringu, framsetningu í verslun, vörupöntunum, gerð vaktaplana auk tilfallandi verkefna.

Umsóknarfrestur er til 19. Júlí 2024

Frekari fyrirspurnir um starfið má senda á netfangið: atvinna@icewear.is

Almennt um Icewear:

Icewear er íslenskt útivistarvörumerki og á sögu að rekja allt aftur til ársins 1972.

Vörulína Icewear er mjög stór og samanstendur af fjölbreyttu úrvali af útivistarfatnaði og fylgihlutum fyrir börn og fullorðna. Allar vörur Icewear eru hannaðar á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. Icewear leggur ávalt mikið upp úr góðum verðum og góðri þjónustu enda er útivist fyrir alla.

Icewear hefur hlotið jafnlaunvottun og vinnur samkvæmt jafnréttisstefnu fyrirtækisins sem og mannauðsstefnu. Þá er í gildi samskiptasáttmáli og gildi Icewear eru samskipti, metnaður og ánægja.

Verslanir Icewear eru í dag 23 talsins og eru staðsettar um land allt undir merkjum Icewear, Icewear Magasín, Icemart og Arctic Explorer.

"Þín útivist - Þín ánægja"

Sjá vefsíðu Icewear: www.icewear.is

Skrifstofur fyrirtækisins eru staðsettar í Suðurhrauni10 í Garðabæ og starfsmenn Icewear eru um 280 talsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Störf verslunarstjóra eru margvísleg og miðast m.a. við að halda upp háu vöru- og þjónustustigi í verslun Icewear. Þjálfun starfsmanna er miklilvæg, halda uppi góðum starfsanda og skapa skemmtilegt vinnuumhverfi. Tilfallandi verkefni koma daglega upp á og þá reynir á útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð. 

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Reynsla af verslunarstjórastörfum skilyrði

·         Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum

·         Sölumennska og góð þjónustulund

·         Frumkvæði og metnaður í starfi

·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Auglýsing stofnuð2. júlí 2024
Umsóknarfrestur13. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar