Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Húsvörður - félagsheimilið Þinghamar

Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Starf húsvarðar í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi er laust til umsóknar. Um er að ræða 30-50% starf og er tímabundið til eins árs. Í starfinu felst einnig tilfallandi kvöld og helgarvinna sem stjórnast af aðsókn að húsinu og tímasetningu viðburða sem haldnir eru.

Menntunar- og hæfniskröfur
Lipurð og færni í samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Reynsla af sambærilegu starfi kostur .
Helstu verkefni og ábyrgð
Hefur umsjón og eftirlit með félagsheimilinu Þinghamri.
Starfar við og hefur umsjón með húseignum, tækjum og innanstokksmunum.
Sér um opnun/lokun húsnæðis og annast smávægilegt viðhald.
Annast bókanir vegna félagsheimilisins og er til staðar þegar það er í notkun.
Fylgist með að umhirðu lóðar sé ekki ábótavant.
Situr nefndarfundi húsnefndar.
Auglýsing birt16. júní 2022
Umsóknarfrestur7. júlí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)