
Míla hf
Míla er virkur þátttakandi í uppbyggingu framtíðarinnar. Á næstunni munum við sjá nýja og spennandi lausnir vaxa og dafna á Alnetinu. Gervigreind, sýndarheimar, heildrænar fundarlausnir, fjarkennsla og heilsa eru allt svið sem koma til að eflast samhliða öflugum tengingum. Við þurfum á brautryðjendum framtíðar að halda til að styrkja stoðir fjarskipta Íslands.

Hugbúnaðarsérfræðingur
Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, hefur gaman af því að takast á við flókin verkefni og leysa úr krefjandi áskorunum.
Ef þú hefur brennandi áhuga á hönnun og þróun hugbúnaðarkerfa, vilt vinna í líflegu og skemmtilegu umhverfi og taka þátt í að styðja við mikilvæga innviði þá langar okkur að heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun og þróun á Salesforce (Apex, Flow, LWC)
- Forritun og endurbætur á samskiptagátt – API Integration Layer (.net C#)
- Samþættingar á milli kerfa
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegu námi
- Reynsla af forritun í Salesforce
- Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Frumkvæði, fagmennska og lausnamiðuð nálgun
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Jákvætt viðhorf og vilji til að skapa góða liðsheild
Fríðindi í starfi
🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta
🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun
🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með billiard-borði
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BakendaforritunC#SalesforceSamþætting kerfaVefforritun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Göng og brú leitar að Lausnahönnuði
Göng og brú

Forstöðumaður Stafrænnar þróunar
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur í upplýsingatækni – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Hugbúnaðarsérfræðingur í gögnum og gervigreind
Alfreð

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Senior Software Engineer, Simulation Platform
Aveo ehf.

Gagnaforritari
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Technical Artist (Mid-level/Senior), Unreal Engine 5
Aveo ehf.

Enterprise Architect | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Sviðsstjóri upplýsingatækni- og gagnamála
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Graphics Programmer
Fenris Creations

Infrastructure Engineer
Skývafnir