Brasserie Askur
Brasserie Askur

Hress og jákvæður starfsmaður óskast í mötuneyti

Við leitum að öflugum einstaklingum sem hafa gaman af því að vinna með fólki og leggja sig fram við að skapa hlýlegt og snyrtilegt umhverfi. Starfið felst í afgreiðslu og þjónustu við gesti mötuneytisins, umsjón með matnum sem kemur tilbúinn til framreiðslu, ásamt almennum þrifum og umsjón með aðstöðu.

Vinnutími er frá 10:30 - 14:30 alla virka daga (50% starf)
Möguleiki er á aukavöktum í eldhúsi og/eða þjónustu á kvöldin og um helgar fyrir réttan aðila.

Við leggjum mikla áherslu á að rétti aðilinn sé þjónustulundaður, með jákvætt viðmót og hafi ánægju af því að vinna með fólki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla og þjónusta við gesti mötuneytisins

  • Framsetning og umsjón með mat

  • Þrif og snyrting á borðum og sal

  • Tryggja að mötuneytið sé hlýlegt og vel tekið á móti gestum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Brosmild og jákvæð framkoma

  • Áreiðanleiki og stundvísi

  • Reynsla úr þjónustustörfum er kostur en ekki skilyrði

  • Góð íslenskukunnátta eða góð enskukunnátta

Fríðindi í starfi
  • Hádeigsmatur
  • Frí á rauðum dögum
Auglýsing birt29. september 2025
Umsóknarfrestur3. október 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar