

Hópstjóri í búsetuúrræði Klettabær
Klettabær leitar að öflugum hópstjóra sem brennur fyrir velferð barna og ungmenna.
Klettabær starfrækir sértæk búsetuúrræði, hvíldardvalir auk fjölbreyttrar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu í Þjónustumiðstöð Klettabæjar. Megin markhópur Klettabæjar eru börn og ungmenni með margþættan vanda sem þurfa sértæk úrræði og/eða einstaklingsmiðaða nálgun og þjónustu. Markmiðið er að stuðla að jöfnum tækifærum ungs fólks til þátttöku og lífsgæða í samfélaginu.
Í Klettabæ ríkir mikil starfsánægja og góður starfsandi. Unnið er eftir hugmyndafræðinni áfalla- og tengslamiðaður stuðningur.
Einkennisorð Klettabæjar eru ástríða, fagmennska, gleði og umhyggja.
Hópstjóri stýrir úrræði utan reglulegs vinnutíma deildarstjóra, þar með taldar tenglaskyldur við þjónustuþega. Viðkomandi er meðvitaður um alla þætti starfseminnar og getur tekið ákvarðanir og staðið og fallið með þeim. Hópstjóri starfar samkvæmt persónuverndarstefnu og öryggisreglum fyrirtækisins og gætir trúnaðar í öllum sínum samskiptum innan sem og utan sinnar starfseiningar.











