Verkís
Verkís
Verkís

Hönnuður stjórnkerfa

Við leitum að verkfræðingi eða tæknifræðingi með reynslu af vinnu við stjórnkerfi til starfa í stjórnbúnaðarhópi Orku- og iðnaðarsviðs. Iðnmenntun og reynsla af forritun stýrivéla er kostur.

Starfið felst í greiningu og hönnun stjórnkerfa, gerð teikninga og forritun stýrivéla í virkjunum, tengivirkjum, veitukerfum og iðnaði. Prófanir og gangsetningar kerfa á verkstað eru einnig hluti af verkefnum hópsins.

Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum með góða samskipta- og skipulagshæfni sem sýna metnað, frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Mikilvægt er að umsækjendur hafi gott vald á íslensku og ensku.

Auglýsing birt7. janúar 2022
Umsóknarfrestur19. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar