Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Hlutastarf á heimili fatlaðs barns

Velferðarsvið Kópavogs leitar eftir starfsfólki í skemmtilegt starf við að aðstoða tíu ára dreng úr Kópavogi og sjá um persónulegar þarfir heima fyrir. Drengurinn er með sjaldgæfan sjúkdóm sem kallast lissencephaly, notast við hjólastól og þarfnast aðstoðar við allar athafnir daglegs lífs.

Um hlutastarf á vöktum er að ræða. Viðkomandi þarf að geta unnið aðra hvora helgi og tilfallandi vaktir á virkum dögum, getur þó komið fyrir að það þurfi að vinna tvær helgar í röð en fá þá tvær helgar í frí á móti. Vaktir eru oftast frá 16:30-22:30 á virkum dögum eða 22:30-07:30. Helgarvaktir eru frá 9:00-16:00 og 16:00-23:00 og 23:00-09:00. Gott væri ef að einstaklingur geti tekið næturvaktir, bæði um helgar og á virkum dögum.

Þetta starf hentar vel með skóla.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Ef þú hefur gaman af að vinna með börnum og til í að prófa skemmtilegt og spennandi starf við fjölþætta umönnun er þetta starfið fyrir þig.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af starfi með fötluðu fólki kostur
Reynsla af umönnunarstarfi kostur
Hæfni í samskiptum og samstarfi
Framtakssemi og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingsmiðaður, persónulegur stuðningur við athafnir daglegs lífs
Lyfjagjafir
Eftirlit með líðan og stöðubreytingum barnsins
Samvinna við aðra starfsmenn og aðstandendur
Önnur fjölbreytt verkefni og þátttaka í lífi drengsins
Auglýsing birt21. febrúar 2023
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kópavogsbraut 5A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar