Hluta- og helgarstarfsfólk óskast

Við hjá Vero Moda leitum af starfsfólki í hlutarstarf í nýja og betrumbætta verslun okkar í Kringlunni!
Um ræðir starf aðrahverja helgi ásamt því eru lausar vaktir á virkum dögum.
Starfshlutfall fer eftir vaktaplani verslunar og getur verið breytilegt.

Við leitumst eftir fólki sem vinnur vel í hóp ásamt því að geta sýnt frumkvæði í starfi. Einnig þarf viðkomandi að hafa brennandi áhuga á tísku.

Hjá Vero Moda starfar gríðarlega flottur hópur af skemmtilegu og færu fólki sem elskar föt og fylgihluti. Við vinnum í góðri samvinnu og leggjum mikinn metnað í að veita frábæra og faglega þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita viðskiptavinum frábæra þjónustu
  • Liðsinna viðskiptavinum um val á fatnaði og fylgihlutum
  • Áfyllingar og frágangur á vörum í verslun og lager
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta
  • Reynsla af verslunar- og/eða þjónustustörfum er kostur
  • Rík þjónustulund og sölugleði
  • Jákvæðni, metnaður og framtakssemi
  • Áhugi á tísku
Fríðindi í starfi
  • Mjög góður starfsmannaafsláttur af vörum Bestseller
Auglýsing birt23. ágúst 2024
Umsóknarfrestur13. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Kringlan 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar